Sjávarréttasíður Rf Uppskrift nr. 89

Heitir smjördeigsbotnar með rækjusósu (fyrir 4)

4 litlir smjördeigsbotnar eða 1 meðalstór
600 g rækjur í skel
2+1 msk smjör
1 lítill laukur
1 msk tómatpaste
1 dl hvítvín
1 dl vatn + fiskisúputeningur eða 1 dl fiskisoð
2 msk hveiti
3-4 dl rjómi
1 msk koníak
cayennepipar
salt (ef vill)

Takið rækjurnar úr skelinni, geymið skelina, saxið laukinn. Látið laukinn krauma í 2 msk af smjöri án þess að brúnast. Bætið tómatpasta, rækjuskel og teningi í. Hellið víni og vatni yfir. Látið sjóða í 5 mín. í lokuðum potti. Dragið pottinn til hliðar, stráið hveitinu yfir, hrærið vel, blandið rjómanum í. Sjóðið í 10 mín. Sigtið sósuna, veiðið rækjuskelina upp úr en þrýstið lauknum í gegn. Smakkið sósuna til með koníaki, cayennepipar og salti. Bætið 1 msk af smjöri í sósuna. Látið rækjurnar í sósuna, má ekki sjóða. Látið smjördeigsbotnana í 200°C heitan ofn í nokkrar mín. Skiptið rækjujafningnum á smjördeigsbotnana og berið strax fram. Hægt er að gera rækjujafninginn fyrir fram, en láta rækjurnar ekki í fyrr en síðast. Ef þær sjóða verða þær seigar.


Úr uppskriftabæklingi Nr. 50, Blandaðir skelfiskréttir