Sjávarréttasíður Rf Uppskrift nr. 84

Eggjakaka með osti og rækjum (fyrir 4)

7-8 egg
+5 msk vatn
400 g rækjur
150 g óðalsostur, rifinn
1 dl smátt saxaður graslaukur
1/5 tsk svartur pipar
örlítið salt
1-2 msk smjör

Saxið graslaukinn. Þeytið saman egg og vatn. Blandið osti, lauk, salti og pipar í. Bræðið smjörið, látið það brúnast örlítið. Setjið eggjahræruna á pönnuna og hrærið sífellt í með gaffli, þar til hræran byrjar að þykkna. Stráið rækjunum yfir og látið bakast undir loki í nokkrar mín. Borið fram með grænu salati og brauði.


Úr uppskriftabæklingi Nr. 50, Blandaðir skelfiskréttir