Sjávarréttasíður Rf Uppskrift nr. 67

Ofnbakaður fiskur (fyrir 2)

300 g ýsuflök
300 g tómatar
1 laukur
1 paprika
smjör
1/4-1/2 tsk karrí
sítrónusafi
salt
150 g óðalsostur, rifinn

Roðflettið flökin og raðið í eldfast mót, til skiptis við niðursneidda tómata, lauk og papriku. Stráið salti og karríi yfir og því næst sítrónusafa. Setjið nokkra smjörbita ofan á, stráið ostinum yfir og bakið við 200°C í 30 mín.


Úr uppskriftabæklingi Nr. 71, RÉTTIR FYRIR TVO