Sjávarréttasíður Rf Uppskrift nr. 62

Gratíneraður fiskur með piparostasósu (fyrir 4)

600 g ýsuflök, soðin
4 msk smjör
4 msk hveiti
2 dl fisksoð
2 dl mjólk
1 tsk salt
100 g ábætisostur með pipar
2 eggjarauður
2 eggjahvítur
brauðmylsna

Hitið ofninn í 190°C. Bakið sósuna upp og þynnið hana með soði og mjólk. Skerið piparostinn í þunnar sneiðar og látið hann bráðna í sósunni. Hrærið vel í á meðan. Bætið við salti ef þörf er á. Takið pottinn af hellunni og látið sósuna kólna aðeins. Hrærið nú eggjarauðunum saman við. Skerið fiskinn í litla bita og blandið honum saman við sósuna. Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið þeim varlega saman við. Hellið þessu í smurt eldfast mót og stráið brauðmylsnu yfir. Bakið í 25-30 mín. Berið réttinn fram strax og með honum hrísgrjón, brauð og smjör.


Úr uppskriftabæklingi Nr. 81, FISKRÉTTIR MEÐ OSTI OG SMJÖRI