Sjávarréttasíður Rf Uppskrift nr. 57

Austurlenskur karrífiskur (fyrir 4-6)

1 kg ýsuflök
100 g rækjur
30 g smjör
1 laukur, smátt saxaður
2 hvítlauksgeirar, pressaðir
1 tsk rifin engiferrót
2 stk chilipipar, þurrkaður og mulinn
2 tsk malað cumin (ekki sama og kúmen)
2 tsk turmeric
4 tómatar, afhýddir og pressaðir
115 g kókóshnetumassi fæst t.d. í Kryddkofanum og Hagkaup
31/2 dl heitt vatn
110 g hreinn rjómaostur
safi úr tveimur limeávöxtum
1 tsk salt

Hitið smjörið í þykkbotna pönnu og látið laukinn krauma í því ásamt hvítlauk, engifer, chilipipar og cumin í 10 mín. Skerið fiskinn í jafna bita. Takið laukblönduna af pönnunni og setjið fiskinn í staðinn. Látið krauma í 2-3 mín. á hvorri hlið. Takið fiskinn af pönnunni og setjið rækjurnar í staðinn og látið þær krauma í 1-2 mín. Takið þær af pönnunni. Setjið nú laukinn aftur á pönnuna, kryddið með turmeric og látið krauma í 1 mín. Setjið tómatana út á. Blandið saman kókosmassa og heitu vatni, saltið og hellið þessu út á pönnuna ásamt helmingi limesafans. Látið suðuna koma upp og bætið þá rjómaostinum út í. Látið malla þar til blandan þykknar, eða í 8-10 mín. Blandið fiski og rækjum varlega saman við sósuna . Látið hitna vel og hellið því sem eftir er af limesafanum yfir. Berið fram með hrísgrjónum og grænmetissalati.


Úr uppskriftabæklingi Nr. 81, FISKRÉTTIR MEÐ OSTI OG SMJÖRI