Kartöflur frá Skáni (fyrir 2)
- 2 stórar nýbakaðar kartöflur
Fylling
- 100 g hreinn rjómaostur
- 100 g 10% eða 18% sýrður rjómi
- 1 msk majónsósa (má sleppa)
- 100 g rækjur, grófsaxaður
- 1 msk dill
- dill og rækjur til skrauts
Takið heitt kartöflukjötið varlega úr hýðinu með skeið.
Blandið fyllingarefnunum saman við og skreytið með rækjum og dillkvisti.
Þessi réttur er góður einn sér með salati, brauði og smjöri.
Úr uppskriftabæklingi Nr. 90, BAKAÐAR KARTÖFLUR, 1994