Pasta með túnfisksósu (fyrir 4)
- 300 g pasta, fiðrildi eða annað
- 2 laukar, saxaðir
- 1 hvítlauksgeiri, pressaður
- 15 g smjör
- 1 dós (um 400 g) tómatar
- 2 dl vatn
- 100 g hreinn rjómaostur
- 1 tsk kjötkraftur
- 2-3 msk tómatkraftur
- 1 dós (um 200 g) túnfiskur
- 1/4 tsk salt
- 1/4 tsk svartur pipar
- 1/2 dl söxuð, fersk steinselja
- 75-100 g 26% ostur, rifinn
Látið lauk og hvítlauk krauma í smjörinu í nokkrar mín.
Bætið tómötum, vatni, kjötkrafti og tómatkrafti út í.
Látið sjóða undir loki í 15 mín.
Setjið rjómaostinn út í og látið hann bráðna.
Setjið túnfiskinn í bitum út í sósuna.
Kryddið með salti og pipar.
Sjóðið pastað skv. leiðbeiningum á pakkanum og látið leka vel af því.
Setjið pastað á fat, hellið sósunni yfir og stráið ostinum að síðustu yfir.
Úr uppskriftabæklingi Nr. 87, PASTARÉTTIR, 1994