| Sjávarréttasíður Rf | Uppskrift nr. 44 |
Látið laukinn krauma í smjörinu þar til hann verður mjúkur og
glær. Bætið hveiti, salti og cayennepipar út í og blandið vel
saman. Hellið rjómanum út á og hrærið vel í. Bætið humrinum út
í, látið suðuna koma upp og sjóðið í 2-3 mín. Sláið eggjarauðurnar
sundur í skál og setjið örlítið af heitri sósunni saman við.
Hellið þessu því næst í pottinn, bætið sérríinu út í og hitið að suðu.
Hrærið í á meðan og gætið þess að ekki sjóði. Berið fram í litlum
skeljum eða brauðkollum.
Úr uppskriftabæklingi Nr. 89, SKELDÝR & KRABBADÝR, 1995