Fiskrönd með skelfisksósu (fyrir 4-6)
- 600 g ýsuflök, hreinsuð
- 2 msk kartöflumjöl
- 3 msk hveiti
- 1 tsk fiskikraftur
- 1/2 tsk season-all
- 1 tsk laukduft
- 1/2 tsk karrí
- 11/2 tsk salt
- 5-6 dl mjólk
Hakkið fiskinn eða saxið í kvörn. Blandið mjöli og kryddi saman við
fiskinn og hrærið vel. Blandið kaldri mjólkinni smám saman út í og
hrærið vel á milli í hrærivél eða blandara. Fiskdeigið á að verða
samfellt og létt. Ef notaður er frosinn fiskur þarf minni vökva.
Látið fiskdeigið í smurt mót með álpappír yfir og bakið í vatnsbaði
í ofni við um 200°C í 50-60 mín.
Skelfisksósa
- 1/2 laukur
- 1/2 rauð paprika
- 1 msk smjör
- 2 tsk fiskikraftur
- 1 dl rjómi
- 2 dl vatn
- 2 dl mjólk
- 1 tsk laukduft
- 1 tsk soja
- 1/2 tsk salt
- 2 msk hveiti
- 1/2 dl kalt vatn
- 100 g rækjur
- 100 g hörpuskelfiskur
Saxið lauk og papriku og látið krauma í smjöri. Bætið fiskikraftinum
út í og síðan vökvanum. Kryddið og sjóðið í 5 mín. Hristið
hveitijafninginn og jafnið út í heitan vökvann. Sjóðið við vægan
hita í 5 mín. Smækkið og hreinsið hörpuskelfiskinn. Bætið rækjum og
hörpuskelfiski út í sósuna og látið hitna vel í gegn, sjóðið
ekki. Bætið kryddi við ef þarf. Berið sósuna fram með fiskröndinni,
soðnum kartöflum og grænu salati.
Úr uppskriftabæklingi Gerðu það gott nr. 8