Sjávarréttasíður Rf Uppskrift nr. 33

Skelfiskfylling

6 brauðkollur, heimabakaðar eða keyptar
100 g sveppir
1/2 - 1 laukur
250 g hörpuskelfiskur
1 msk smjör
1/2 - 1 tsk sweet basil
1 dl vatn
2 tsk fiskikraftur
250 ml rjómi
2-3 msk maísenamjöl fyrir ljósa sósu
2 msk sérrí
1/2 tsk salt

Saxið lauk og sveppi og látið krauma í smjöri á pönnu. Bætið rjóma, vatni og kryddi út í og jafnið með maísenamjölinu. Sjóðið við vægan hita í 3-4 mín. Hreinsið hörpuskelfiskinn og látið hann malla í sósunni í 3-5 mín. eða þar til fiskurinn hefur hitnað vel í gegn. Sjóðið ekki of lengi þá verður fiskurinn seigur. Bragðbætið með sérríi, salti og meira kryddi að vild.


Úr uppskriftabæklingi Gerðu það gott nr. 5