Sjávarréttasíður Rf Uppskrift nr. 27

Dillsósa með reyktum eða gröfnum fiski

1 ds. 200 g sýrður rjómi 10 eða 18%
4 msk majónes
2 msk dill
2-3 tsk sykur
1/2 tsk svartur pipar
2-3 msk sætt sinnep

Blandið saman sýrðum rjóma og majónesi. Bætið kryddinu út í og hrærið vel. Látið bíða 2-3 klst. í kæli. Berið sósuna fram með reyktum laxi eða silungi. Einnig má nota svona sósu með gröfnum fiski.


Úr uppskriftabæklingi Gerðu það gott.