Saltfiskur úr Vizcaina héraðinu (fyrir 4)
Morue à la mode de Biscaye
- 800 g saltfiskur
- 3 laukar
- 1 dós tómatkraftur
- 6 rauðar paprikur
- olía
- salt
- sykur
Skerið laukinn smátt og steikið í olíunni á pönnu við vægan hita.
Bætið tómatkraftinum út í, hrærið vel.
Opnið paprikurnar, flysjið og skerið í smábita.
Merjið í gegnum gatasigti, þannig að "kjötið" bætist í laukinn og tómatsósuna.
Bætið salti, dálitlum sykri og örlitlu volgu vatni út í.
Sósan á að vera skærrauð og svolítið þykk.
Ef hún er of þunn má bæta harðsoðinni eggjarauðu út í.
Setjið beinlausan fiskinn í leirpott, hellið sósunni út á og látið malla í klukkustund.
Hristið pottinn öðru hvoru.